|
Nesbúð
er hótel og veitingastaður á Nesjavöllum:
Ægifögur
náttúra er sérkenni staðarins
Nesbúð
er hótel og veitingastaður á Nesjavöllum þar
sem hægt er að dvelja í góðu yfirlæti
í ægifögru umhverfi. Nesbúð er tilvalinn
áningarstaður einstaklinga eða hópa sem vilja njóta
náttúru Íslands í þægilega umhverfi
og nánum tengslum við náttúruna.
Nesjavellir og Hengilssvæðið allt er ein helsta náttúruperla
Suðurlands og Nesbúð er einungis í 25 km fjarlægð
frá Reykjavík. Gufurstrókarnir og stórfengleg
náttúra Nesjavalla gera það að verkum að
staðurinn á engan sinn líka. Á Nesjavöllum
er að finna fjöldann allan af gönguleiðum í fallegri
náttúru um eitt helsta háhitasvæði Íslands.
Nesjavellir eru þekktir fyrir ævintýralegt landslag,
hvera- og gígasvæði, ár og stöðuvötn
ásamt fjölbreyttu gróðurfari.
Í Nesbúð og nágrenni er að finna fjölbreytta
afþreyingu. Hægt er að fara í styttri og lengri
gönguferðir, boðið er upp á bátsferð
og veiði í Þingvallavatni, hestaferðir, skoðunarferðir
um Þingvelli og ævintýraferðir á vélsleðum
um Hengilssvæðið á veturna.
Hótel Nesbúð nýtur vaxandi vinsælda sem
samkomustaður fyrir hvers kyns mannamót, fundi, ráðstefnur,
námskeið, árshátíðir og starfsmannaferðir.
Nesbúð,
Nesjavöllum, 800 Selfoss.
Tel.: (354) 482 3415. Fax (345) 482 3414
|
 |